Færsluflokkur: Bloggar

Lítil saga, af litlu lokuðu umslagi. (smásaga)

Upp úr aldamótum höfðu erlendar njósnastofnanir fengið pata af því að eithvað meiriháttar væri í bígerð í Bandaríkjunum. Rússnesk stjórnvöld höfðu að sjálfsögðu mikinn áhuga á að kynna sér hvers þeir gætu orðið vísari um fyrirætlanir erkifjenda sinna fyrir vestan. Þeir komust fljótlega á snoðir um það að dagskrá hefði verið sett saman til að boða lykilmenn innan Pentagon og fleiri stofnana á fund við forsetann. Einn af þeim mönnum sem höfðu fengið boð um að hitta forsetann var Dr. Adrien, háttsettur innan þjóðaröggyggisráðs, hluthafi og stjórnarmaður Lockheed Martin.

Rúsnneskum njóstastofnunum var nú falið það verkefni að með einhverjum hætti finna út hvað væri á seyði, og Rússnesk yfirvöld höfðu sérstakan áhuga á að Hvíta Húsið yrði hlerað meðan á fundum þessara lykilmanna við forsetann færu fram. Tilraunir Rússa til að lama skramblera Hvíta Hússins höfðu mistekist ein af annarri, en þann 29.3.2001 tókst þeim með rafsegulbylgju að lama skramblera forsetans, og njósnahnöttur á sporbaug var vel staðsettur til að ná upptöku af því sem fór fram á þessum fundi, með innrauðum hlerunargeisla.

Innan veggja neðanjarðarbyrgis á ótilgreindum stað í Rússlandi, innan um umslög frá Geimferðastofnun Rússlands,
í stál skúffu skjalaskáps, níundu röð, þriðju efstu frá vinstri er umslag merkt;

29.3.2001

Gögn úr njósnahnetti / Kosmos - 2410.

kl: 13:07:37 til 13:29:15

lengd: 0:22:38

Viðhengi / loggur /v rafsegulbylgju nr: 812/73/13.

HERNAÐARLEYNDARMÁL.

"Hr. Adrien, þakka þér fyrir að bregðast við boði mínu um fund við þig. Þú ert mikils metinn, og ég býð þig velkominn í Hvíta Húsið. Ríkisstjórn mín og ég höfum fyrirætlanir þar sem að við þurfum á hjálp manna á borð við þig að halda, og þess vegna hefur þú verið boðaður hingað."

"Mín er ánægjan Hr. Forseti, ég þakka boðið."

"Ég ætla að tala við þig umbúðalsaust Hr. Adrien. Við ætlum að safna svo miklu valdi á einn stað á þessari öld, að það fær öll önnur stórveldi mannkyns sögunnar til að blikna í samanburði. Við höfum kallað saman lykilmenn okkar til funda við okkur til ráðagerða og skipulagningu á því sem mætti kalla upphafið á stærsta valdaráni í heiminum til dagsins í dag. Þú áttar þig á því Adrien, að þess sem þú verður vísari hér í dag fellur undir alger ríkisleyndarmál, og því ætti mér að vera óþarft að krefja þig um trúnað og algera þagmælsku um ráðahag okkar. Til að tryggja það og þá hagmuni sem okkur ber að verja gagnvart þjóð okkar, mun þér að fundi þessum loknum verða fylgt af leyniþjónustumönnum á hersjúkrahús hér í grennd þar sem örflögu verður komið fyrir í líkama þínum. Örflaga þessi tryggir okkur þín heillindi, og er í raun og veru formsatriði í þessu sambandi, en gefur okkur kost á því að bregðast skjótt við ef til trúnaðarbrests skyldi koma."

" Já herra, trúnaður minn til þessa embættis og þjóðar minnar er alger, ég er eiðsvarinn þjónn þjóðarinnar."

"Gott og vel. Við viljum fá þig til þess að lesa þessa skýrslu sem liggur fyrir framan þig, og hefur verið sett saman af sérfræðingum okkar. Eftir lestur hennar viljum við að þú setjir saman hóp, sem getur hrint í framkvæmd fyrstu skrefum áætlunar þessarar. Áætlun okkar er sú að öðlast algera stjórn yfir blóðflæði heimsins, olíunni. Þú munt einnig öðlast skilning á því hvernig okkur mun takast þetta áætlunarverk okkar, með því að dreifa ótta og skelfingu um heimsbyggðina alla. Ótta sem verður slíkur, að samkennd manna mun eiga verulega undir högg að sækja. Það stríð sem við verðum að eiga frumkvæði að, verður því ekki síður haldið á andlegum grunni, en veraldlegum. Okkur mun með þessari áætlun takast að ná þannig stjórn á olíudreifingu um heiminn að óvinir okkar munu á endanum neyðast til þess að ganga til liðs við okkur, þar sem að ellegar verði hótunum okkar um algert viðskiptabann og aðrar efnahagslegar þvinganir, hrint í framkvæmd."

"Okkur mun, ekki síst fyrir tilstuðlan snilld okkar bestu manna úr röðum sálfræði og atferlisfræðinga hjá sálfræðihernaðardeild Pentagon, takast þetta ætlunar verk um miðja öld eða fyr. Og það fyrir allra augum, og með samþykki mikils meirhluta manna. Vopna og njósnaþróun mun öðlast hraða sem engin fordæmi eru fyrir, og ósýnilega og í skjóli aðsteðjandi hættu, um öryggi heimsborgarana, fáum við okkar framgengt, með góðu eða illu."

"Við teljum okkur vera komnir á þann stað í áætlunum okkar að við séum að verða tilbúnir að láta hið sýnilega koma upp á yfirborðið. Að baki er nú þegar rúmur áratugur undirbúnings. Þriðju kyslóðar njósnahnettir okkar, og gögn sem þjóðaröryggisstofnun hafa samkeyrt við gögn leyniþjónusta bandalagsins , segja okkur að jarðvegurinn sé tilbúinn. Við höfum komið upp leynifangelsum víðs vegar um hnöttinn, til að bregðast við fyrirsjáanlegri andspyrnu. Útsendarar hafa verið sendir til ríkja sem óhjákvæmilegt verður að eiga í viðskiptum við meðan á fyrstu stigum aðgerða okkar verður fullnægt. Ráðamenn og ríkisstjórnir þessara landa munu sverja af sér alla vitneskju um aðgerðir okkar innan landa þeirra, verði þeir eftir því inntir."

"Þetta verður hátækni stríð, ekki síður en andlegt. Og fyrir tiltuðlan vina okkar í Silicon dalnum, erum við nú þegar áratugum ef ekki árhundruði á undan Stóra Birni, í ræfrænni tækni. Þeim skýrslum sem hafa nú þegar verið skrifaðar, munu ekki verða birtar fyr en löngu eftir okkar dag, ef þá nokkurntímann."

"Hr. Adrien. Þú stendur hér fyrir framan mig í dag, eiðsvarinn hollustu við þjóð þína, á sögulegum tímum. Ekki síður sögulegum en tímum gamla testamentisins, og því nýja. Þar sem segir að skrásetja skyldi heimsbyggðina alla, en það ætlum við okkur einmitt að gera nú, um 2000 árum eða 730.000 dögum síðar en þau orð voru rituð. Með nútíma hugviti og tækni munum við geta fylgst með hvaða einstaklingi sem okkur sýnist, búið til nákvæma persónuleika lýsingu, fylgst með hópamyndunum og atferli hópa úr mörg þúsund kílómetra fjarlægð. Njósnahnettir okkar munu geta staðsett hverja sál sem andann dregur og allir verða merktir sínum sérstöku auðkennum. Ný kynslóð tölvuforritara okkar hafa þróað forrit sem gera okkur þetta kleift. Settar hafa verið upp ótal vefsíður, þar sem fólk þessarar jarðar er sjálfviljugt að gera starf okkar töluvert auðveldara. Lokatakmark okkar er, ein jörð, ein ríkisstjórn, takmarkalaust vald. Persónulegt frelsi og persónuvernd verða að hugtökum sem tilheyra munu fortíðinni. Nú þegar hafa stórfyritæki verið að selja þá hugmynd og þvinga á fólk, sem nauðsynjum."

"Þau sirka 1.5% manna sem tilheyra elítu stóveldis okkar, munu með þessu móti njóta gæða við lok þessarar aldar, sem okkur í dag, gæti ekki með nokkru móti komið til hugar. Þúsund ára ríkið sem spáð hefur verið til um er um þessar mundir aðeins að stíga sín fyrstu bernsku skref, og með hverjum nýjum degi að vaxa ásmegin. Heimildir þessarar elítu, sem við leggjum grunnin að þú og ég Hr. Adrien, verða óendanlegar, og upphafið að enn stærri hugmyndum ófæddra afkvæma okkar. Þú mátt vera stoltur af því að hafa verið valinn inn í þennan hóp manna, við upphaf nýs skeiðs, og nýs árþúsunds."

"Leyniþjónustumennirnir sem fylgdu þér hingað og bíða þín utan við skrifstofu mína, munu nú fylgja þér á hersjúkrahúsið þar sem við munum gera viðeigandi ráðstafanir, til að tryggja trúnað þinn við áætlun þessa."

"Þakka þér innilega fyrir herra forseti, ég mun ekki bregðast hlutverki mínu."

"Þú hefur 14 daga til að lesa þessa skýslu þar sem hlutverki þínu er lýst niður í kjölinn. Eftir þann tíma munu öll þín samskipti fara í gegnum Hr. Elos fulltrúa leyniþjósnustunnar dulnefni Two Diamonds. Og auðvitað er óþarft að minna þig á að þessi fundur átti sér aldrei stað. Eigðu góðan dag."

- Lok sendingar innrauðs geisla kl: 13:29:15

Viðhengi/ loggur um rafsegulbylgju/ Siberian Wafe/ nr: 812/73/13


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband